"why stand on a silent platform, fight the war, fuck the norm"
01. apríl 2008 klukkan 22:58
Það er kominn 1. apríl 2008. ég verð tvítugur eftir aðeins 19 daga. Já sæll þarf ekki að að spurja að því að lífið líður hratt. Það líður hratt og gengur sinn vanagang. ég er búin að vera veikur undanfarna 3 daga og það er ömurlegt að vera veikur. Iðjuleysi og maður hangir og glápir á dvd og nennir engu nema að gera ekki neitt. Málið er bara að ég er komin með önnur viðhorf til t.d. vinnu eða skóla eitthvað þannig því ef það væri ekki tilgangur með öllum athöfnum og því sem maðurinn gerir þá veit ég ekki hvernig lífið væri. Annars var Páskafríið fínt vann aðeins og kíkti í bústað með gömlum bekkjarfélögum í bústaðnum hans Vals, spiluðum póker og ég tók pottinn sáttur með ferðina. Fékk vikufrí í fótboltanum og nýtti það í hvíld. Ég fór samt ekki neitt eins og mig langaði. En mér hlakkar til vorsins því það eru góðir tímar framundan, dimmitering, fótboltferð til akureyrar, útskrift og talandi um það að bráðum kemur sumar. Annars ætla ég bara að halda mínu striki ég er með báða fætur á jörðinni. Ég er áhrifagjarn og Rage against the Machine eru að hafa sín áhrifa þessa stundina. Ætla að láta þessa mynd fylgja sem var cover á plötunni þeirra árið RATM ’92 en þetta er ekta ljósmynd af munki sem brenndi sjálfan sig lifandi í mótmælaskyni töff mynd en ja eins og ég segi þeir hafa áhrif og eru góðir sko. 
Sölvi G Gylfason