"why stand on a silent platform, fight the war, fuck the norm"





Jæja það hlaut að koma að því að vetrarþunglyndið kæmi upp eftir þokkalegt sumar. Ég vil samt meina að þetta sé Herði að kenna hann kom með mjög góða færslu sem hægt er að sjá hér . Sumarið einkenndist af latri vinnu og miklum keyrslum út á Akranes þar sem ég var að æfa með 2.flokk ÍA það gekk ekki vel en við féllum niður í b-deild=/. Ég hef verið að hugleiða framtíðina mína mig hlakkar til að útskrifast úr menntaskólanum næsta vor og takast á við að öllum líkindum heimspeki næsta haust en ég vil ekki vera með of mikla framtíðarþrá heldur njóta augnabliksins. Málið er bara að mér leiðist námið í menntaskólanum. Þýskan er að fara mjög illa með mig sem og viðskiptalögfræði og hagfræði. En maður þraukar. Ég hef verið óheppinn upp á síðkastið ég sem hafði aldrei verið laminn síðan í 7unda bekk af árna gunn var laminn á busaballinu og nefbrotnaði, hefði getað farið verr en margir gera sér grein fyrir. Fjarskyldur ættingi minn lét nú lífið við eitt hnefahögg á Ásláki í Mosfellsbæ fyrir nokkrum árum. Þetta var leiðinleg lífsreynsla og það versta við þetta var hvað þetta var algjörlega út í hött. Þess má geta að Sókrates taldi að það versta sem gæti komið fyrir mann væri óréttlætið sem ég varð svo sannarlega fyrir ekki einu sinni heldur tvisvar því núna um helgina þá var ég skallaður vitleysan gerist tvisvar í sama mánuðinum, þetta bara á ekki að vera hægt. Hva.. En læt þetta nægja með mynd af litla frænda mínum sem fæddist í seinustu viku ég er orðin föðurbróðir.
![]()
alveg þvílíkt myndarlegur
Jæja nú er komin laugardag 24 mars. en maður er löngu búin að gera sér grein fyrir því að tíminn líður sona frekar hratt. Enn ein skólavikan liðinn og ég að fara að klára 3 ár mitt í menntaskóla það eru nú alveg ágæt tímamót í lífinu myndi ég halda. Við vorum að keppa áðan gegn Breiðablik í 2.flokki gerðum 2-2 jafntefli í hörkuleik og það hefði verið gaman að sigra þá, var frekar svekktur eftir leikin. En við höldum ótrauðir áfram
Ég fór með strákunum í bíó í gær á myndina 300 og það kom mér á óvart hvað hún var góð. Minnti mann á gömlu bardagamyndirnar sem gerðust í hinum rómanska heimi. Þetta var góð blanda af nútíma tækni og gömlu og skuggalegu umhverfi. Líka ánægður með boðskap myndarinnar, ég nenni ekki eitthvað fjalla um hana en virðing,stolt, dyggð og hugrekki lýsa þessari frábæru mynd best.
"Þvílík Dýrð"
En hef ekkert meira að segja l8er..